Boðsbréf á málþing

Reykjavík, febrúar 2019

Boð á málþing

Samráðsvettvangur trú- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi, sem var stofnaður árið
2006, býður á málþing, sem verður haldið fimmtudaginn 21. febrúar 2019 frá kl. 17.00 til
19.00 í safnaðarheimili Neskirkju í Reykjavík. Umræðuefni málþings er:

Umhverfismál og trú.

Frummælendur á þinginu eru Halldór Þorgeirsson, formaður Loftlagsráðs og
fyrrverandi framkvæmdastjóri alþjóðasamvinnumála hjá skrifstofu Loftlagssamnings
Sameinuðu þjóðanna, Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í guðfræðilegri siðfræði við
Guðfræði- og trúarbragðadeild Háskóla Íslands og Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði.
Séra Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, prestur í Neskirkju, mun stýra fundinum.

Umræða um umhverfismál og loftlagsbreytingar hefur verið áberandi í íslensku
þjóðfélagi að undanförnu. Trúfélög og lífsskoðunarfélög láta sig þessi mál varða, þar sem
þau snerta lífsgæði allra íbúa jarðar og framtíð hins byggilega heims. Margir
trúarleiðtogar hvetja til umhugsunar og viðhorfsbreytinga í þessum efnum, bæði á
alþjóðavettvangi og heima fyrir.

Samráðsvettvangurinn hefur að markmiði að stuðla að góðum og friðsamlegum
samskiptum milli trú- og lífsskoðunarfélaga hér á landi, að efla umburðarlyndi og
virðingu milli fólks með ólík lífsviðhorf og standa vörð um trúfrelsi og önnur
mannréttindi. Tuttugu trúfélög og lífsskoðunarfélög eru aðilar að samráðsvettvangi.
Með málþinginu vilja trú- og lífsskoðunarfélög, sem eiga aðild að
Samráðsvettvang-inum, vekja upp spurningar meðal almennings um þau gildi sem liggja
til grundvallar friðsamlegu þjóðfélagi, sem gengur um umhverfi sitt af ábyrgðartilfinningu
og virðingu. Málþingið er öllum opið og léttar veitingar verða framreiddar í hléinu.
F.h. Samráðsvettvangs trú- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi,
Séra Jakob Rolland

Samráðsvettvangur trú- og lífsskoðunarfélaga á Íslandi
Talsmaður: Séra Jakob Rolland
Hávallagata 16, 101 Reykjavík
s. 552 5388. Netfang: samradsvettvangur@googlegroups.com

 

Deila